Stálfjelagið  

::Menu::
Your link #1 Your link #2 Your link #3 Your link #4 Your link #5

::Past::

Opinbert leynifjelag.
This page is powered by Blogger.
   Wednesday, September 04, 2002
Jæja, komnar með nýtt blogg, fluttar úr þessu gamla, nýja slóðin er http://steelunion.blogspot.com/


Naujnaujnauj, stelpan bara orðin algjör krypplingur & komin í sjúkraþjálfun! Fór í fyrsta tímann í dag, passaði mig meirað segja á að lúkka dáldið féló & var með tösku sem var ekki í stíl við skóna mína- bara svona til að ég myndi ekki skera mig of mikið úr. Mér finnst alltaf jafn asnalegt að fara í svona viðtöl þar sem maður er lokaður inní litlu herbergi með einhverjum svona bekk & ég þarf að fara úr fötunum en ekki hinn. Eða var hann kannski bara að plata mig, hahaha....
& hvað sagði sjúkraþjálfarinn við mig? Hann sagði nákvæmlega það sem ég hafið sagt honum í byrjun viðtalsins: Að ég stæði fött & að mér væri illt í bakinu. & svo bætti hann því við að ég yrði að hætta að ganga á háhæluðum skóm. Já einmitt, Herra Sjúkraþjálfari, ég ætla að fara að ganga um á flatbotna skóm. Á ég ekki bara að kaupa mér úlpu í leiðinni?! & derhúfu!! Ædóntþínksó!! Ég ætla ekki að láta mann sem er í jogginggalla allan daginn segja mér í hverju ég að vera.

f.y.H.
-Anna Lind



   Monday, September 02, 2002
Hey, ég er búin að fatta af hverju ég er mað svona þykkt hár: Það er af því að ég er með svo stóran haus. Sönnun: Stærri haus (caput)=> meira yfirborðsflatarmál (a) => fleiri hársekkir (folliculi pili) => þykkara hár (capili)! Það væri gaman að rannsaka svona, ég held að ég stefni bara á að verða hárlæknir eða eikkvað. Mér fannst þetta ekki sniðugt þegar ég var að útskrifast, 57 cm!!!
Hélt bara að það væri heimsmet & ég ætti meira erindi í sirkus en háskóla.
Ég er svona að detta inní skólann, þetta er ekki jafn leiðinlegt & mig minnti, bara skítfínt :-) Nema hvað það eru svaaaaakaleg nörd þarna. Sko ef læknirninn minn hefur ekki vit á að klæða sig eins & maður, hvernig á hann þá að hafa vit á að lækna mig??!! Þetter allt saman mjøøøøg dularfullt. En svona til að klóra í bakkann af því að ég var svo löt í sumar, þá fór ég á fyrirlestur uppí vinnu um viðtaka í MTK & sársauka, geðveikt spennó, verkjalyf & svona. Það skemmdi ekki að fyrirlesarinn talaði ensku með norskum hreim, úúúúú, það var svo fallegt....

-Anna



   Thursday, August 29, 2002
Jæja, Þið yndislegu Stálfélagsmær og hin fíflin!!!
Þá er ég loksins komin heim aftur, ykkur flestum örugglega til mikillar ánægju og gleði! Mitt fyrsta opinbera verk sem handrukkari Stálfélagsins verður víst að berja eitthvað leiðindafífl sem heitir Gestur! Gestur-ef þú sérð þetta- þá ertu DAUÐUR!!!! Annars hef ég svosem ekkert meira að segja, nema ég er óendanlega glöð í mínu litla hjarta að vera loksins búin að hitta mínar yndislegu Stálfélagsvinkonur mínar aftur. Þessar stelpur!

F.Y.H.
Inga Birna


   Wednesday, August 28, 2002
Nnnnnnnnnnóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóó!!!
Skólinn er að byrja á morgun & ég er ekki búin að læra wresget! Getur maður lesið 1.000.000.000 bls af anatómíu á 17 klst? Ætlaði að vera heví dugleg, byrja að taka þetta í janúar & bara trompa þetta í sumar.... já einmitt, bækurnar eru örugglega bara fluttar að heiman eða eikkvað & ég tók ekki einusinni eftir því. Ooooohhhhh, DJÖFULL!!!
En ég verð nú að segja að ég er búin að læra helling í sumar sem maður lærir ekki í háskóla, s.s

*Að drekka eins & svín. & þá er ég ekki að tala um eikkvað svona 1-2 rauðvínsglös eins & ég hef alltaf gert.
*Að maður verður að fara til útlanda allavega þrisvar á ári
*Að gagnstætt því sem ég hélt áður, þá skipta peningar & útlit öllu máli...... fínt!
*Ítölsku..... hehehe
*Að rauðvín & pizza margarita er alveg geðveikt kombó
*Að ég get farið út með slegið hár & í engum brjóstahaldara & það er bara fæn
* Að apótek á Spáni eru jafn tøff & apótek á Englandi

F.Y.H
-Anna Lind


   Tuesday, August 27, 2002
Heh, var að fá aukavinnu með skólanum, allavega eikkvað svona framanaf. Það verður fínt, þá get ég kannski eytt einhverjum massa í Glasgow.... tja eða keypt mér nýtt rúm. Rúmið mitt er nefnilega ónýtt :-( Á meðan flest fólk eyðileggur rúmin sín með því að ríða þau niður í flísar eða kveikja í þeim, þá dó mitt rúm úr leiðindum, frekar glatað að segja frá því.
Nema ég spari peninginn & byrji með einhverjum lúða sem býr á stúdentagörðunum. Ekki bara slepp ég við að kaupa mér nýtt rúm þá, heldur spara ég mér líka pening í strætó. Ég tala nú ekki um að þá þarf ég aldrei að hitta stelpurnar (af því að ég á þá kærasta sko) & þá spara ég umtalsverða upphæð, áfengi, sígarettur, verslunarferðir, út að borða.... hvað er ég að gera í læknó, þessi stelpa á miklu meira heima í hagfræði!
-Djók, það eru bara asnar sem hugsa svona

F.Y.H.F!
-Anna


Fundargerð:

dags. 26.ágúst 2002- Lokafundur sumarsins
mættir: Sigfús, Bragi, Ólafur Styrmir & David Beckham
ekki mættir: hinir lúðarnir, munum ekki hvað þeir heita þegar þeir mæta ekki.
mál á dagskrá: afgreiða korktappa sumarsins, leysa úr hvernig við brennnum korktappana & plana scruff-djamm í september/október.
niðurstaða: það er leyndó, þetta er leynifélag! En ég get sagt að 34,5 korktappar verða brenndir.

F.Y.H & D.N.D.
-Anna


   Monday, August 26, 2002
áherzlubreytingar í stálverinu nú þegar byrjað er að hausta og skólinn að byrja. allar nema mangó verða í skóla í vetur og því verður minna um skipulagða hittinga og rauðvín... þó ekkert sé nú útilokað.. stálverið verður í vetur lærdómssetur, mekka þekkingar með gleðilegu ívafi...

ég kem með beibídónöts í kvöld... ég lofa :) tíhí.. getiggi bítt

-raggaló


....síðasti Mánudagsfundur sumarsins... hlakka til að sjá ykkur girls ...

-Sunna.


   Thursday, August 22, 2002
TILKYNNING TILKYNNING !!!

Stálfjelagið hefur slegið eign sinni á eftirfarandi hluti : Binni (Siglfirðingur með meiru) og Toggi (..eða Bloggi eins og Stálið kallar hann..)

...takk fyrir gærkvöldið strákar ... ;-)

-Sunna.